Sunneva útskrifaðist sem dýralæknir frá Den Kgl Veterinær og Landbohojskole í Kaupmannahöfn í maí 2005.
Sumarið 2006 leysti hún af sem almennt starfandi dýralæknir í V-Húnavatnssýslu, en flutti svo til Íslands í júní 2007 og hóf störf á Dýraspítalanum í Garðabæ. Í starfi sínu sem dýralæknir hefur áhugi hennar einkum beinst að tannheilsu dýra og munnholssjúkdómum.
Sunneva hef sótt ýmis námskeið sem tengjast því sviði og hyggur á frekari menntun þar að lútandi.
Í frístundum er það fjölskyldan og hestamennska sem er í fyrsta sæti hjá Sunnevu, en fjölskyldan samanstendur af þeim hjónum, 3 börnum, hestum, hundi, kött og hænum.
Helstu námskeið sem Sunneva hefur sótt: